Íris, Nökkvi og co

Blogg

26.12.2009

Jólin, jólin

Gleðileg jól gott fólk.
Ég er búin að vera í fríi síðan 15.des og var það kærkomið það er ekki hægt að segja annað. Prófin gengu ljómandi vel og er ég búin að fá út úr öllum nema einu og ég er bara mjög sátt við árangurinn.

Þessir frídagar hafa liðið í rólegheitum oftast nær í samveru við fólkið mitt sem ég hef notið í botn, að mestu. Get ekki sagt að tíminn sem fór í að koma börnunum í að þrífa herbergin sín hafi verið skemmtilegur en þess mun meiri gleði þegar því var lokið :)
Um síðustu helgi fórum við upp í Lón og höfðum það gott, öll nema heimasætan sem þurfti að vinna. Við áttum notalega kvöldstund með ´Bjarmalandsfjölskyldunni og skemmtum okkur konunglega. Svo var að sjálfsögðu spilað og leikið sér.

Jólin hafa verið yndisleg og allir ánægðir með sitt. Mér finnst samveran best, allir borða saman í rólegheitum og það var mikið spjallað. Meira að segja sá yngsti var bara nokkuð rólegur þó hann langaði mikið í pakkastúss. Jóladagurinn er uppáhalds en þá hittist stórfjölskyldan hjá mömmu og pabba og borðar saman kvöldmat og spjallar fram á kvöld. Í ár var frekar fámennt enda vantaði Bjössa og hans fjölskyldu og Hafrúnu og hennar fjölskyldu.

Strákarnir byrja í skólanum þann 4.jan og Yrsa Líf þarf að vera mætt á Akranes í sinn skóla þann 6.jan. Skólinn byrjar líka þann 6. hjá mér. Svo er komið að seinni útlegð vetrarins þann 18.jan, úff alltof stutt þangað til. En það verður fljótt að líða ég hugga mig við það.

Ég vona að þið hafið öll notið yndislegra jóla með þeim sem ykkur þykir vænst um. Megi nýtt ár færa ykkur heill og hamingju.

Skrifað 26.12.2009 kl. 11:01 af Íris

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Vafraðu um


Tenglar

Flettingar í dag: 10
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 13
Gestir í gær: 8
Samtals flettingar: 62250
Samtals gestir: 19507
Tölur uppfærðar: 18.3.2010 09:08:06