Íris, Nökkvi og co

Blogg

24.11.2009

Samviskubit á samviskubit ofan

Þá er maður komin heim úr útlegðinni og er það vel.  Ósköp gott að vera heima, ó, já.
Nú fer að gangi í garð prófa- og jólatímabil.  Þetta tímabil einkennist meira af prófalestri hjá mér en jólaundirbúningi. Á svona stundum vildi ég óska þess að ég væri skipulögð manneskja, sem sumum finnst kannski ótrúlegt að ég sé ekki, þriggja barna móðir í námi. En ég er það svo sannarlega ekki og mér finnst yfirleitt heimilið verða undir í baráttu námsins og heimilisins.  Þessa dagana hugsa ég mikið um það hvernig mér datt í hug að fara í þetta nám. Ég er nýkomin heim eftir 5 vikna útlegð og það styttist óðum í þá næstu. Mig langar óskaplega mikið til að eyða meiri tíma í alls konar hluti með börnunum mínum og eiginmanninum. Mig langar að setjast niður og skrifa jólakort í rólegheitunum, mig langar í hreint og drasllaust heimili, jólaskraut og bökunarilm, jólaföndur og samveru. Ef ég væri skipulögð þá mundi ég kannski geta gert eitthvað af þessu. Tíminn sem ég á afgangs þegar lærdómi líkur finnst mér aðalega fara í að hugsa um mat, kaupa inn, elda og þvo þvott. Reyni að eyða smá tíma í börnin en blessaður eiginmaðurinn situr algjörlega á hakanum. Að ég tali nú ekki um þrif o.þ.h.
Ég er nöguð af samviskubiti. Þegar ég læri er ég með samviskubit yfir að vera ekki með börnunum eða að sinna heimilinu. Þegar ég er að því er ég hins vegar með samviskubit yfir því að vera ekki að læra. Þetta er óskemmtilegt og ég viðurkenni það fullvel að stundum er ég alveg ofboðslega þreytt á þessu. Ég á það til að fá samviskubit yfir því að finnast skemmtilegt að vera í skólanum, og þegar ég er í burtu þá eru tilfinningarnar blendnar, því mér finnst þetta skemmtilegt en vildi samt vera heima.

Ég lofa sjálfri mér því reglulega að vera skipulögð og það endist í sirka tvo daga svo er allt komið í vitleysu á ný. Ótrúlegur andskoti. Ég reyni að hugga mig við það að náminu fer alveg að ljúka eða hér um bil alveg. Um áramót eru bara eftir 1 og 1/2 vetur. Eftir 5 vikna útlegð eftir áramótin er ekki svo mikil útlegð eftir, mun minna sem ég þarf að vera að heiman næsta vetur.

Jæja þá er ég búin að ausa þessu úr mér og get hætt að væla og vonandi glöð byrjað prófalestur. Kannski skrifa ég engin jólakort í ár, nota bara útvarpið og skjávarpið. Skreyti svo bara vel yfir helv..... draslið og skítinn, hita kanel í potti til að fá baksturslykt og held jól með börnunum mínum og gef mér tíma til að vera eiginkona og mamma.

Hafið það gott og njótið jólaundirbúnings

Skrifað 24.11.2009 kl. 8:54 af Íris

Bein slóð á færslu

6 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

11.11.2009

Útlegðarpistill 2

Sælt veri fólkið!
Nú fer dvöl minni í höfuðborginni alveg að ljúka. Síðasti dagur í verknámi á morgun. Þessi tími er sem betur fer búinn að vera fljótur að líða, oftast. Ég er búin að læra margt og mikið og það sem öllu máli skiptir fá þjálfun í hinum ýmsu hjúkrunarverkum. Lokamat var í dag hjá mér og ég stóðst þennan hluta verknámsins og fékk góða umsögn, með ábendingu um að nú ætti ég að fara að trúa á sjálfa mig. Þetta er allt sanngjarnt og ég veit að ég er alltof gjörn á að trúa ekki eigin getu. 

Ég fylgdist með þegar milta var fjarlægt í gegnum kviðsjá í dag og það var alveg frábært, læknirinn var svo elskulegur að sýna mér með sjánni (á skjá) ristilinn, nýrun og lifrina m.a og fleiri líffæri. Þetta var merkilegt maður minn og ég verð að segja að mannskepnan er mun huggulegri að innan heldur en ég hafði ímyndað mér. Í gær fylgdist ég með þegar steinar voru fjarlægðir úr brisgangi það var líka gert með svona ómsjá eða hvað þetta heitir en í gegnum munn. Tæknin er sko alveg frábær við þetta.

Svo hef ég náttúrulega verið að vinna hin ýmsu hjúkrunarverk, taka upplýsingar af fólki, fræða það. Skrá hjúkrunarupplýsingar og gera hjúkrunargreiningar. Setja upp og fjarlægja þvagleggi. Setja upp æðaleggi (nálar), fjarlægja dren, skipta á skurðsárum og taka hefti. Taka til og gefa lyf, blanda lyf og setja upp vökva. Ásamt því að vera til staðar, spjalla aðstoða fólk á fætur eftir aðgerð og fleira og fleira og fleira. Sem sagt búin að gera og sjá margt.

Ég tók með mér allt námsefni og þóttist ætla að byrja að læra undir prófin sem eru rétt handan við hornið. En ég get ekki sagt að ég hafi litið í bók, hef gert eitt verkefni og á annað eftir. En annars hef ég aðalega notað tíman sem aflögu er til að heimsækja vini og ættingja og hef notið þess.

En nú líður að heimferð og mikið hlakkar mig til að komast heim. Það verður yndislegt að sjá og knúsa strákana mína og bóndan. Sofa í mínu rúmi við hliðina á bóndanum verður líka ljúft. Sjá kunnuleg andlit í búðinni og horfa á fallega fjallahringinn.

Það er tilhlökkun og spenna í lof

Skrifað 11.11.2009 kl. 23:08 af Íris

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Vafraðu um


Tenglar

Flettingar í dag: 4
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 20
Gestir í gær: 8
Samtals flettingar: 62377
Samtals gestir: 19547
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 03:49:15