Íris, Nökkvi og co

Blogg

25.9.2009

Titill, nákvæmlega það sem þú vilt að hann sé!

Sælt veri fólkið!
Ég get svo svarið það að tíminn flýgur á fleygiferð út í buskan. Sem þýðir kannski það að það sé nóg að gera hjá mér. Það er skóli nánast alla daga frá 8-16 og eftir svona langa skóladaga þá er ég svo gjörsamlega búin á sál og líkama að ég slugsast bara heima við og geri varla nokkurn skapaðan hlut. Ég hitti skólasystur mínar og sé annað fólk sem dvelur í Nýheimum á daginn svona í mýflugumynd, því það eru rétt 5-10 mín á milli fyrirlestra. Námsefnið er keyrt áfram og nú er bara að verða komið að 5 vikna útlegð minni í höfuðborginni, og skólinn var bara að byrja. Hlakka samt til verknámsins þó ég viti að það verður ekki alltaf auðvelt að vera svo langt að heiman. Ég byrja á því að vera 2 vikur á geðdeild og svo 3 vikur á handlækningadeild (almenn skurðdeild). Báðar þessar deildir eru á Landsspítalanum við Hringbraut.

Annars að allt öðru ég er búin að vera að velta því fyrir mér hvað virðing er mikilvæg. Ekki það að ég hafi ekki alltaf vitað það. Í náminu þá er mikið talað um virðingu enda er hún mjög mikilvæg í því starfi sem ég hef fengist við (umönnun) og líka í því sem ég er að mennta mig til og að sjálfsögðu er hún mikilvæg í heilbrigðisgeiranum eins og hann leggur sig, en því miður stundum ábótavant.
Virðing er hornsteinn í samskiptum og ég tala nú ekki um þegar unnið er með fólk. Því miður hef ég unnið með fólki í umönnun sem sýnir ekki skjólstæðingunum virðingu, og ég fæ ekki skilið hvers vegna það hefur ákveðið að vinna í svona starfi. Ég velti því líka fyrir mér hvort þessir einstaklingar beri bara ekki virðingu fyrir fólki almennt eða virði bara ekki þá sem eru minnimáttar. Þetta fer bara alveg með mig að upplifa svona lagað, og ég vona að ég sem hjúkrunarfræðingur geti eytt virðingarleysi gagnvart skjólstæðingum alla vega þar sem ég kem til með að vinna.
Mér finnst líka virðingaleysi vaða uppi í samfélagi okkar í dag. Það hugsar bara hver um sinn rass og spáir ekki í því hvort gjörðir þeirra hafi áhrif á aðra til hins betra eða verra. Fólk ryðst hvert um annað þvert til þess að ná sínu takmarki og er skítsama hvort það veður yfir einhverja á skítugum skónum eða kippir undan einhverjum fótunum. Það er frábært að stefna að einhverju takmarki en það er ekki alveg sama hvaða leið þú velur.
Mér finnst líka að margt ungt fólk beri litla virðingu gagnvart eigum annarra, stundum er skemmdarfýsnin alls ráðandi. Leiðinlegt finnst mér að ganga um bæinn minn og horfa upp á verk þeirra. Hjólinu hans Darra var stolið fyrir utan Heppuskóla um daginn og hefur ekki sést síðan, enginn af skólafélögunum kannast við að hafa séð það eða vita hvað varð um það, heyrði líka af einu hjóli sem var skemmt fyrir utan sama skóla. Einhverjir dunduðu sér við að skemma loftaplötur og eitthvað fleira í nýju sundlauginni okkar í sumar. Algert virðingarleysi fyrir hlutunum.

Við fáum svo margt fram með því að sýna virðingu, við náum því besta fram í manneskjunni ef við komum fram við hana af virðingu. Sama hvort hún er yngri en við eða eldri, lítil eða stór, feit eða mjó, veik eða heilbrigð, fötluð eða ófötluð, svört eða hvít, rík eða fátæk. Í flestum tilfellum ef við sýnum virðingu uppskerum við virðingu. Og ég tala nú ekki um að hrósa í ofan á lag, og benda á kosti einhvers! Það getur dimmu í dagsljós breytt:

Sýnum hvort öðru virðingu alltaf.

Hefur þú hrósað einhverjum í dag?

Skrifað 25.9.2009 kl. 17:26 af Íris

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

4.9.2009

Nóg að gera og allir glaðir

Hvað er nú betra en það?
Það er sem sagt allt komið á fullt í venjubundnum störfum vetrarins. Fáfnir Freyr er nú reyndar að takast á víð alveg nýja hluti þar sem hann hóf skólagöngu nú á haustdögum. Hann er bara ánægður bæði í skólanum og í lengdri viðveru. Hann dvelur sem sagt í skólaselinu Kátakoti frá því að skóla lýkur hjá honum þar til móðirin er búin í sínum skóla. Hann hefur nú reyndar viljað láta mig fylgja sér alveg inn í stofu tvisvar í þessari viku, og var ekki alveg tilbúinn að sleppa mér í morgun. En ég held að það sé ekkert óeðlilegt. Pilturinn var lestrarprófaður í vikunni og þá kom í ljós að hann les rúmlega 240 atkvæði á mínútu. En það er viðmiðið fyrir börn í 5-6 bekk, svo hann er í góðum málum þar.

Darri Snær fluttist yfir í Heppuskóla í haust og er nú bara nokkuð ánægður heyrist mér á honum. Hann er kominn þar í nemendaráð, og ég held honum eigi eftir að líka það vel. Held hann verði svoldið félagsmálafrík. Hann byrjaði líka að læra á bassa og er aldeilis spenntur fyrir því. Hann ætlaði nú að leggja Alt-hornið á hilluna en Jói (skólastjóri tónskólans) var að ýja að því að Darri héldi áfram að spila með lúðrasveitinni í vetur. Og að sjálfsögðu verður einhver bolti spilaður, ekki alveg viss hvort það verður körfu- eða fótbolti.

Yrsa Líf er í Fjölbrautarskólanum á Akranesi og líkar vel. Hún er farin að kynnast krökkum og farin að æfa box. Heimþráin gerir nú vart við sig öðruhvoru, en ég held að það sé alveg eðlilegt. Þetta á eftir að þroska hana heilmikið, og alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt.
Skólinn hjá mér er kominn á fullt skrið og ég er einmitt að fara norður á Akureyri á sunnudag og verð þar i viku í staðlotu. Svo verð ég að heiman frá 5.okt til 13.nóv. í verknámi. Ég er ekki ennþá búin að fá að vita hvar ég verð, en það skírist víst á mánudag. Ég er mikið að velta því fyrir mér hvað ég eigi að gera í kóramálum í vetur. Var eiginlega búin að ákveða að taka mér frí vegna þess hvað ég verð mikið að heiman, en er svo ekki alveg viss. Það er svo gott og gaman að hitta skemmtilegar konur og syngja frá sér allt vit. Ég ætla að hugsa málið aðeins lengur.

Af bóndanum er það helst að frétta að hann spáir aðalega í gæsir þessa dagana og skipulagningu fótboltamála vetrarins. En hann er formaður knattspyrnudeildarinnar og það er nóg að gera í því starfi. Í aðal vinnunni er lika nóg fyrir stafni og hann á eftir að taka megnið af sínu sumarfríi. En það getur nú verið plús að geta tekið eitthvað af því þegar hann verður konulaus.

Ég nenni ekki að tala um kreppu, icesave eða dýrtíð, ég þoli það ekki og get bara orðið alveg brjáluð. Sérstaklega þegar kemur að því hvað allt er orðið dýrt..............en stopp ég ætlaði ekki að skrifa um það.

Hamingjan felst ekki í því að vera ánægður með það sem maður fær, heldur því að kunna að meta það sem maður hefur.

Verið góð hvert við annað.

Skrifað 4.9.2009 kl. 21:39 af Íris

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Vafraðu um


Tenglar

Flettingar í dag: 12
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 16
Gestir í gær: 9
Samtals flettingar: 62336
Samtals gestir: 19526
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 10:42:51