|
Íris, Nökkvi og co |
|
Blogg26.8.2009Rútína á nýJæja þá er skólinn byrjaður á ný hjá krökkunum. Strákarnir byrjuðu í morgun og það var spenna í loftinu. Darri Snær var að byrja í Heppuskóla svo grislingarnir mínir voru öll að stíga sín fyrstu skref á nýjum stað. Fáfnir Freyr var að vonum mjög spenntur, en hann vildi nú samt að mamma fylgdi sér alveg inn í stofu. Það þarf nú ekki að taka það fram að bróðir hans afþakkaði pent slíka þjónustu 20.8.2009Sweet sixteenÍ dag er frumburður minn hún Yrsa Líf sextán ára. Tíminn flýgur svo sannarlega. Hún fæddist kl 16:10 þann 20. ágúst 1993 en þá voru liðnir heilir 33 tímar frá fyrstu hríðum. Þetta gekk alls ekki vel en hafðist að lokum, hún var ósköp smá ekki nema 2410 grömm og 49 cm. Fyrst eftir fæðinguna andaði hún ekki og hjartað hennar sló óreglulega. Mér fannst líða heil eilífð þar til hún fór að gráta og ég fékk ekki að sjá hana strax því læknarnir voru að stumra yfir henni til að koma öllu á rétt ról. Ég hélt meira að segja fyrstu mínúturnar að hún væri strákur því ljósmóðirin sem var belgísk sagði við okkur "það verður allt í lagi með hann", þar til hún var leiðrétt! Þegar búið var að koma lífi í dömuna þá fékk ég rétt að sjá hana umvafða í handklæði og strjúka á henni kinnina og svo var farið með hana á vökudeildina þar sem hún var í hitakassa með súrefni. En daman mín er þrjósk og ég fékk að halda á henni í fyrsta skipti kl 13 daginn eftir, það var ótrúleg stund. Hún fór ekki meir í súrefniskassan, og litla þrjóska stelpan þyngdist og braggaðist svo um munaði, mér var sagt að reikna með því að þurfa að vera lengur en þessa hefðbundnu fimm daga á fæðingardeildinni því stelpan fengi ekki að fara heim fyrr en hún væri búin að ná 10 mörkunum! En við fórum heim á réttum tíma. Stelpan er enn þrjóskari en andskotinn en ég held að það sé nú bara kostur, ef maður kann að fara með það. Hún var einstaklega brosmilt barn og kát, þó svo að hún héldi foreldrunum við efnið í tæp tvö ár með því að sofa lítið á nóttunni. Hún hefur alltaf verið mjög sjálfstæð og staðið fast á sínum skoðunum og staðið við þær ákvarðanir sem hún tekur. Hún er klár að teikna og hefur verið teiknandi frá því hún fór að geta haldið á blýanti. Henni finnst líka mjög gaman að syngja og gerir það mjög vel. Eftir þrjá daga þá ætlar hún að "flytja" að heiman. Hún ætlar að vera í skóla á Akranesi í vetur, mig kvíður svoldið fyrir að hafa hana ekki heima, hugsa að það verði skrítið. ![]() ![]() |
Vafraðu umEldra efni Tenglar
Flettingar í dag: 7 Gestir í dag: 6 Flettingar í gær: 20 Gestir í gær: 8 Samtals flettingar: 62380 Samtals gestir: 19550 Tölur uppfærðar: 22.3.2010 11:26:26 |