|
Íris, Nökkvi og co |
|
Blogg16.6.20096 áraLitla barnið mitt er 6 ára í dag. Mikið sem tíminn líður hratt. Þessi elska hefur nú látið fara þó nokkuð mikið fyrir sér alla tíð, nánast frá getnaði. Enda hefur hann nú stundum gengið undir nafninu litli þrýstingur svona í góðra vina hópi og innan fjölskyldunnar. Þegar ég var gengin rétt um 11 vikur með prinsinn var ég lögð inn vegna þess að blóðþrýstingurinn var upp úr öllu valdi. Hann náðist ekki niður svo ég var send með hraði til Reykjavíkur þar sem fólkið á meðgöngudeildinni sá um að lækka þrýstinginn. Svo var ég send heim og átti að hvíla mig. Aftur var ég send suður milli jóla og nýárs og eyddi áramótunum á sjúkrahúsi, fékk reyndar að skjótast til Bjössa og borða og skjóta upp rakettum. En í þetta skipti náðu þeir að stjórna þrýstingnum og ég fékk að fara heim, en ég mátti ekkert vinna og lítið gera svo ég segi stundum að það hafi verið full vinna að ganga með hann Fáfni Frey. Vegna fyrri fæðinga og þrýstingsins var ákveðið að Fáfnir Freyr kæmi í þennan heim með keisaraskurði, svo mér fannst þetta allt frekar skrítið. Vissum kynið, vorum búin að ákveða nafn og vissum fæðingardaginn. Þetta var frekar undarleg tilfinning að kvöldi 15 júní 2003 að hugsa til þess að Fáfnir Freyr kæmi í heiminn í kringum hádegi daginn eftir. Ég reiknaði nú með að í þetta skipti myndi allt ganga frekar smurt fyrir sig þar sem þetta var allt svona skipulagt. En þar sem við hjónin erum þekkt fyrir alls konar vesen í kringum fæðingar þá breyttum við ekkert út af vananum með þetta og þegar var búið að deyfa mig ´þá uppgötvaðist seint og um síðir að læknirinn sem átti að skera mig var týndur.................................og deyfingin á mörkunum með að endast. Við gátum nú ekki annað en glott hvort framan í annað hjónin, en það fannst annar læknir og deyfinging rétt dugði svo ég slapp við svæfingu. Kl 12:20 rétt rúmlega kom Fáfnir Freyr í heiminn, svona líka flottur og fínn. Hann hefur haldið þeirri venju að láta fara svoldið fyrir sér og það er sjaldan lognmolla í kringum hann, en hann er duglegur, klár og að sjálfsögðu með eindæmum fallegur strákur. |
Vafraðu umEldra efni Tenglar
Flettingar í dag: 21 Gestir í dag: 10 Flettingar í gær: 16 Gestir í gær: 9 Samtals flettingar: 62345 Samtals gestir: 19531 Tölur uppfærðar: 20.3.2010 19:27:18 |