Íris, Nökkvi og co

Blogg

29.3.2009

Fegurð







                 Litla fallega frænka mín 6 daga gömul

Fékk þessar myndir lánaðar af barnalandssíðunni hennar til að sýna ykkur 
hvað hún er falleg.  Þar sem ég hef ekki ennþá orðið þeirrar ánægju aðnjótandi
að hitta prinsessuna í eigin persónu, þá kíki ég á myndir af henni oft á dag.
Finnst ykkur hún ekki mikið krútt?

Skrifað 29.3.2009 kl. 19:08 af Íris

Bein slóð á færslu

7 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

28.3.2009

Vetur í bæ

Ég er svo sannarlega komin heim, búin að knúsa og knúsa og knúsa aðeins meira. Búin að nöldra í unglingnum svo hann finni að mamma sé komin heim, búin að elda almennilegan mat. Fara með þeim stutta í fimleika, og eldri drengnum að undirbúa enn eina fjáröflunina (það er ekki lítið sem búið er að fjárafla þetta árið), týna upp slatta af drasli, ganga frá þvotti og þvo þvott......................og ég get svo svarið það ég naut þess í botn, spurning hvað það varir lengi ;)

Hér er allt á kafi í einhverju hvítu sem ég held að kallist snjór.  Kannski flykkist landinn bara til Hornafjarðar á skíði um páskana, það væri nú tilbreyting í því. Ábyggilega fínt að renna sér niður skarðið!! Ef maður er fyrir þess konar íþróttamennsku.

Vona að enginn sé fenntur í kaf

Skrifað 28.3.2009 kl. 23:29 af Íris

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

26.3.2009

Spenna

Jæja, þá er þetta að alveg að klárast. Síðasta vaktin á morgun og heim á föstudag. Það er svo mikil spenna í mér, að ég get ekki sofnað. Mér líður eins og barni að bíða eftir jólunum.  Ég er búin að læra margt, deildin er góð þó mér hafi ekki litist mjög vel á hana í fyrstu. Þá bara batnaði hún og þar var mjög fjölbreytt starf unnið.  Starfsfólkið er frábært, og ótrúlega margir höfðu einhverja tengingu við Hornafjörð á einn eða annan hátt. Ég lærði alla vega mjög margt og er ennþá vissari um að ég er á réttri hillu í þessu námi. En mikið rosalega verður gott að koma heim.

Ég verð að deila með ykkur yndislegri sögu af Fáfni Frey, sem Nökkvi sagði mér áðan. Hann var búinn að koma þeim stutta í rúmið, og var eitthvað að bardúsast frammi. Allt í einu er kallað innan úr herbergi

F:"pabbi, hvað er fax?"
N:"það er hárið á hesti"
F:"Ha?"
N"hárið sem er á hálsinum og hausnum á hesti"
F:"af hverju er það í SÍMASKRÁNNI?"

Nökkvi fór nú að kanna málið, þá var drengurinn að lesa Sindraskránna sem er símaskrá Hafnar.
Og það stóð á mörgum stöðum fax..........................
Ætli hann hafi verið búinn með öll Andrésblöðin eða hvað? Ég velti því fyrir mér hvað knýr fólk til þess að lesa símaskránna sér til dægrardvalar. Hvað þá fimm ára gamalt barn. Eða sex ára, hann fer víst alveg að verða sex ára litla barnið mitt.

Nú ætla ég að reyna að sofna í hausinn á mér, það er ræs klukkan 6

Skrifað 26.3.2009 kl. 0:48 af Íris

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

22.3.2009

Mygla

Þessa helgina hef ég tekið eftir óvenjulegum grænum blettum sem hafa verið að spretta fram á mér einn af öðrum.  Ég áttaði mig ekki hvað þetta var fyrr en ég fór að finna skrítna lykt. MYGLA
Ég átta mig ekki alveg á því hvort hún er sökum aldurs eða leiðinda.  Kýs samt að trúa því að hún sé vegna leiðinda!

Er búin að hanga ein alla helgina, ég veit í höfuðborg Íslands er hægt að finna nóg að gera og svo framvegis.  Ég finn mig bara lítt knúna til að gera þá hluti alein.  Það er líka hægt að láta sér leiðast meir en mann hefði grunað í höfuðborg Íslands.

Ég er búin að fara í Kringluna og rölta um og skoða í búðir alein, líka búin að rölta um miðbæinn alein.  Og mér fannst ég alveg ótrúlega ein í allri mannmergðinni.

Mér datt í hug að kíkja í Ikea um helgina alein og kaupa mér lampa eins og ég keypti um daginn og braut þegar ég kom heim.  En þegar ég sá að það kostaði það að taka þrjá strætóa, og bið upp undir hálftíma á hverri stoppustöð þá ákvað ég að það væri sennilega bara skárra að hanga heima alein.

Ég held að það sé auðvelt að týnast hér í borginni, og hitta aldrei sálu, og bara gleymast.  Það er eiginlega óhuggulegt, en ég held það sé ekki erfitt.

Fyrirgefið þetta leiðindablogg en svona fer fyrir manni þegar myglublettir fara að brjótast út maður nöldrar og týnir sér í sjálfsvorkun!

Ég vona svo sannarlega að þið hafið ekki fundið á ykkur myglubletti um helgina

Skrifað 22.3.2009 kl. 20:27 af Íris

Bein slóð á færslu

9 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

18.3.2009

Útilegukonan bloggar

Sælt veri fólkið. Ég er náttúrulega svakalega montin móðursystir, finnst samt óttalega leiðinlegt að vera svona langt í burtu og geta ekki mátað prinsessuna og grafið nefið í hálsakotið og fundið splunkunýju lyktina.  Ég stalst til að fá lánaða mynd af henni svo ég gæti sýnt ykkur hvað hún er sæt og fín.
      
       

Sissa amma og Lúlli afi eru hjá mér í Reykjavíkinni núna. Gaman að fá félagsskap. Þau voru svo elskuleg að bjóða mér út að borða í gær ásamt móðursystrum mínum Ingu Birnu og Guðlaugu. Þær eru afskaplega hláturmildar konur og skemmtilegar þessar elskur. Og það var alveg sérlega gaman að eyða kvöldstund með þessu yndislega fólki og að sjálfsögðu var mikið hlegið.

Nú er verknámið mitt rúmlega hálfnað og ég fer alveg að komast heim :) Ég var að skila stóra líkamsmats-verkefninu mínu og svo var ég í svo kölluðu miðjumati í gær, en þar er farið yfir hvernig mér gengur með leiðbeinendum og kennurum, þá fær maður tækifæri til að bæta sig fram að lokamatinu.  Þær voru mjög ánægðar með mig og ég fékk ekkert nema hrós, ég þurfti nú bara að halda aftur af tárunum.  Svo ég er bara alsæl með þetta allt saman, fullt af gleði í kringum mig þessa dagana.

Bóndan minn fæ ég svo að hitta á morgun!! Hann þarf að koma á fund til Reykjavíkur og ég nýt góðs af ;) Fæ að knúsa hann aðeins.

Hafið það sem allra best krúttin mín

Skrifað 18.3.2009 kl. 11:09 af Íris

Bein slóð á færslu

7 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

15.3.2009

Sunnudagur

Skoða nánar

14.3.2009

Skoða nánar

11.3.2009

Stóra upplestrarkeppnin

Skoða nánar

7.3.2009

Lífið í borginni

Skoða nánar

6.3.2009

Mömmuleysi

Skoða nánar

2.3.2009

Jæja

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Vafraðu um


Tenglar

Flettingar í dag: 19
Gestir í dag: 10
Flettingar í gær: 16
Gestir í gær: 9
Samtals flettingar: 62343
Samtals gestir: 19531
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 16:05:20