|
Íris, Nökkvi og co |
|
Blogg30.10.2008Ekki kreppubloggÞó mig langi þá nenni ég ekki að missa mig hér yfir kreppunni. Ég er ekki sátt það er nokkuð ljóst, nenni samt varla að fylgjast með fréttum því þá verður maður svo leiður! Heima hjá mér hefur engin misst vinnuna og það er gott. Ekki meira hér um kreppu!!!! Það er nóg að gera eins og venjulega og ekki setið auðum höndum hér á þessu heimili. Nóg að gera í skólanum. Núna er ég með tvö verkefni í gangi og eina rannsóknarritgerð og á það allt að skilast á svipuðum tíma, gaman að því Svo nú ætti maður að vera duglegur og fara að líta yfir farinn veg og rifja upp!! Söng með kvennakórnum í dag upp á Hjúkrunarheimili, það var nú bara skemmtilegt og gefandi. Er sem sagt búin að vera á fullu síðan kl 8 í morgun. Í skóla til 11 svo á fund, skaust heim í mat og skellti í eina þvottavél. Safna gögnum í ritgerð eftir hádegi til 15:30, söngur með kórnum kl 16, skaust svo í búð og eftir það fór ég að vinna í hjúkrunarferlisverkefninu mínu. Karlinn minn yndislegi var svo búinn að elda þegar ég kom heim svo ég gat sest beint við matarborðið. Darri Snær er á fullu í Legohópnum og er allt að verða klárt fyrir keppnina sem verður í Reykjavík þann 8.nóv. Við erum búin að fá smá kynningu á því sem þau eru búin að vera að gera. Þetta er mjög flott hjá þeim og mikil vinna að baki. Rannsóknarverkefni sem þau þurfa að kynna, vinna með legoróbótan sem þau eru búin að forrita til að leysa fyrirfram ákveðnar þrautir og svo eiga þau að vera með skemmtiatriði líka og eru þau að æfa tónlistaratriði. Þetta er mikil vinna hjá þeim en held þetta sé mjög þroskandi fyrir þau, og að sjálfsögðu skemmtilegt. Svo halda þau úti bloggsíðu um gang mála hjá sér en hana má finna HÉR. Yrsa Lif ætlar að taka þátt í söngvarakeppni Þrykkjunnar og er að reyna að velja á milli laga til að syngja. Þau eru byrjuð að mæta á einhvers konar æfingar, og það er náttúrulega ekkert leiðinlegt við það. Sigurvegarinn keppir svo í söngvarakeppni Samaust(samtök félagsmiðstöðva á austurlandi) held ég og þá um það að fá að fara í aðalkeppnina sem er Samfés(samtök félagsmiðstöðva). Það er svo nóg að gera hjá húsbóndanum í sinni vinnu á milli þess sem hann sinnir ýmsum húsföðursstörfum og dekrar við mig. Fáfnir Freyr er alltaf jafn sáttur á leikskólanum og finnst æðislegt í útileikskóla. Hann þykjist nú samt ekki vilja skilja við móður sína á morgnana og vill helst ekki koma heim þegar hann er sóttur seinni partinn!! Jæja veit ekki hvað ég ætti meir að bulla í ykkur, fyrst ég nenni ekki að missa mig yfir efnahagsástandinu. Mér og mínum líður vel. Ég á góða vini. Og það sem er allra best í heimi svo ég verði svakalega væmin Ég er elskuð og ég elska, hvað er betra en það? 23.10.2008DugnaðurBjó til nýtt albúm og setti inn í það fullt af myndum frá Spáni!! Albúmið heitir Spánn 2008 20.10.2008Heima er alltaf lang-bestÞá er ég nú loksins komin heim. Komum heim seint í gær eftir c.a átta tíma ferðalag frá Akureyri. Og við stoppuðum ekki á leiðinni nema í mesta lagi 20 mín í heildina. Færðin var ekkert sérstaklega skemmtileg. Ég er skelfilega bílhrædd í snjó og hálku, og nokkur andköf voru tekin og nokkur tár sluppu niður kinnar. Ekki það að ég hafi ekki treyst þeim eðal bílstjórum Höllu og Ragnheiði(Bono) þetta er bara eitthvað sem ég ræð engan vegin við. Mestan hluta leiðarinnar sat ég með lokuð augun og kynnti mér upplifun blindra af svona ferðalagi Á Akureyri var mikið stuð. Mikil þekking var sett í gagnabankan og á eftir að fara í gegnum vinnsluminnið. Fjögur próf voru þreitt og að sjálfsögðu brilleruðum við á þeim Eitthvað var nú gægst inn í búðir jú, jú, maður sleppir því nú ekki í kreppunni. Við fórum út að borða á Greifanum, fórum í smá partý hjá hjúkkusystrum okkar af Fjörðum og Egilsstöðum. Síðast en ekki síst var farið í bíó að sjá Mamma Mia. Sumar fóru meira að segja tvisvar Ég lét mér nú nægja eina ferð og fannst rosalega gaman að henni. Ekki má gleyma því að það var mikið gantast og hlegið í þessari dvöl okkar norðan heiða enda miklir spaugarar í þessum hóp. Það var yndislegt að koma heim. Mikið var gott að vakna í morgun við það að litíll maður skreið upp í og læddi höndunum utan um hálsinn á mér og knúsaði mig svo hressilega. Best í heimi! Úff hvað það verður erfitt að vera að heiman í 4 vikur í mars. 14.10.2008Höfuðstaður norðurlandsEr á bókasafninu smá pása milli tíma. Annars erum við alveg á fullu í skólanum, og það er mjög skemmtilegt. Og ég get lofað ykkur því að við hjúkkusystur hlæjum mikið. 12.10.2008FarinMein illa farin og búin að vera! Nei, nei allt í góðu hér, Þá er ég að leggja í hann í mitt úthald á Akureyri. Það verður mikið lært í þessari ferð ó, já stundataflan er þéttskrifuð! Hafið það nú sem best lömbin mín. |
Vafraðu umEldra efni Tenglar
Flettingar í dag: 13 Gestir í dag: 6 Flettingar í gær: 16 Gestir í gær: 9 Samtals flettingar: 62337 Samtals gestir: 19527 Tölur uppfærðar: 20.3.2010 11:29:07 |