|
Íris, Nökkvi og co |
|
Blogg30.5.2008Sýning í PakkhúsinuÁ morgun laugardag eftir hádegi verður sýning í Pakkhúsinu á afrakstri myndlistarnámskeiðanna. Kíkið endilega við. 28.5.2008Nýjar myndir!Fáfnir fór um daginn með Örnu Ósk og Eggert í fjárhúsin að skoða lömbin. Það var skítkalt en þetta var voða gaman. Setti einmitt inn myndir í albúm frá fjárhúsaferðinni og einhverjar fleiri fylgdu með. Teikningarnar sem við Yrsa gerðum á myndlistarnámskeiðinu. Máluðum svo mynd eftir þeim. Set inn mynd af málverkunum þegar ég verð búin að laga mína. Yrsu mynd er vinstra megin og mín hægra megin 27.5.2008FótboltasumariðÞá er fótboltasumarið hjá Darra Snæ hafið. Fyrsti leikur var í dag. Þeir kepptu við Fjarðarbyggð á Sindravöllum, leikurinn fór 3-3. Minn maður var nú ekkert voðalega sáttur en menn jafna sig á því. Það styttist í Svíþjóðarferð hjá þeim feðgum Darra Snæ og Nökkva en þeir fara út þann 21.júní. Lúðrasveitin æfir stíft þangað til og maður er farinn að finna spennuna í loftinu. Piltur kom voða ánægður heim af síðustu æfingu og sagði að þau væru að æfa Smoke on the water með Deep purple. Svo það eru ekki bara týpísk lúðrasveitarlög á prógramminu. Við höfum fengið leigjendur. Þeir hafa nú ekki beðið formlega um leigusamning en gera sig ansi heimakomna. Það er verst að þeir villast stundum hingað inn og hrella föstu íbúana, þá aðalega heimasætuna sem er ekki mjög hrifin. Við höldum að það sé býflugnabú hér uppundir þakskeggi. Teljum okkur vera búin að staðsetja hvar þær búa blessaðar svo nú þarf að fara að fá meindýraeyðinn á staðinn, eða að láta þær borga í hunangi fyrir leiguna. Það er spurning! Hér er búin að vera sól og blíða, bæði í dag og í gær. Reyndar leiðinda rok en maður brosir nú samt framan í sólina og lætur ekki rokið trufla sig. Mamma og pabbi fara að koma heim frá Frakklandi. Skilst að þau séu búin að hafa það mjög fínt. Fékk sms áðan þar sem móðir mín sagði að toppnum á ferðinni væri náð hún væri búin að hitta Cliff Richard! Mig langar voða mikið að fara eitthvað út í heim með mínum manni. Sitja á kaffihúsum og horfa á mannlífið, dreypa á rauðvíni og vera kærustupar..................hljómar vel. Kveð að sinni, njótið lífsins 24.5.2008Sól og blíðaVeðrið er yndislegt alveg, ég er inni að kæla mig niður. Ragga samt er Nökkvi ekkert að spóka sig í garðinum í súpermanbúningnum ![]() Svo er líka mikil sól í hjartanu. Nú er fyrsta ári mínu í hjúkrunarnámi formlega lokið. Síðasta einkunnin er komin í hús. Hjúkrunarfræði 9, og þarf náttúrulega að monta mig enn meir og geta þess að ég var meðal þriggja hæstu! Þá er getur maður farið að anda léttar og njóta sumarsins í botn. Myndlistarnámskeiðið kláraðist í gær. Það var rosalega gaman og við mæðgur máluðum fína mynd. Dótturinni fannst viðfangsefnið ekki mjög spennandi en henni fannst gaman samt. Við máluðum melónu og þrjár sítrónur eftir uppstillingu. Fyrst þurftum við að teikna herlegheitin upp og skyggja og svona. Svo voru útlínurnar teiknaðar á strigan og svo var málað. Mér brussunni tókst svo að rústa myndinni minni örfáum mínútum eftir að ég dró síðasta pensilfarið. Ég hellti yfir hana terpentínu (alveg týpísk ég), svo horfði ég á hana leysast hægt og rólega upp . Hún er að þorna í rólegheitum, reyni svo að laga hana þegar hún er orðin alveg þurr.Við erum búin að vera að njóta góða veðursins í morgun. Fáfnir er loksins búin að fá að sulla í úðaranum, en hann er búinn að bíða spenntur eftir því. Dreif sig út á náttfötunum eldsnemma í morgun og lauk því af að hlaupa nokkrum sinnum í gegnum bununa. Að sjálfsögðu hafði hann mikið gaman af! Jæja nú ætla ég að fara að baða mig í sólinni. Bæði að utan og innan! 22.5.2008Snákar i garðinum!Hann Fáfnir Freyr er búinn að eiga lítinn orm í dollu í nokkurn tíma. Hann hefur geymt dolluna hér á pallinum, undir grillinu, svo enginn steli honum. Hann hefur passað voða vel upp á hann, gefið honum vatn og mold í dolluna og handfjatlað hann reglulega. Núna áðan var ormurinn horfinn úr dollunni. Þvílík og önnur eins sorg hefur sjaldan sést. Litli maðurinn grét og grét. Ég stakk upp á því að finna annan orm því ég veit að mikið er af þeim hér í garðinum. Nökkvi og Fáfnir Freyr ákváðu að leita. Nökkvi fann orm í fyrstu skóflustungu, og sýndi syni sínum hróðugur stóran, feitan og pattaralegan orm (þeir eru engin smá smíði hér í garðinum). Piltur brást ókvæða við og hrópaði upp yfir sig "þetta er ekki ormur, þetta er snákur!!" Pabbinn mátti gjöra svo vel að finna annan minni, það tók tíma en það er kominn ormur í dolluna. Lífið er yndislegt! |
Vafraðu umEldra efni Tenglar
Flettingar í dag: 20 Gestir í dag: 10 Flettingar í gær: 31 Gestir í gær: 10 Samtals flettingar: 62183 Samtals gestir: 19482 Tölur uppfærðar: 15.3.2010 15:41:51 |