Íris, Nökkvi og co

Blogg

29.4.2008

Blogg fyrir Röggu

Það er þá líka eins gott að hún kommenti einhver skemmtileg heit

Við hjónin héldum á suðurlandið eftir hádegi á föstudag þegar við vorum búin að drekka kaffi með Kollu söngdívu.
Við eyddum helginni á Hótel Heklu með fullt af skemmtilegu fólki. Á föstudagskvöldinu var verið að spjalla og fá sér í glas og hafa bara gaman. Menn og konur drukku mismikið og fóru misseint í háttinn svona eins og gengur og gerist. Þetta verður alltaf skemmtilegra með hverri árshátíðarhelgi, fólk farið að þekkjast aðeins og maður man eftir andlitum og nöfnum, fólk hættir að vera feimið.
Á laugardeginum fóru langflestir í byssuleik (lazertag sem er svipað og paintball), sumir beyluðu og enn aðrir lærðu smá stærðfræði eða hin duglega ég :). Fór reyndar fyrst í zik zak og keypti mér nokkrar flíkur og líka í einhverja karlabúð og keypti bol á Nökkva sem gleymdi að taka með sér aukabol  (hann sem var svo hróðugur að vera búinn að pakka öllu sínu á undan mér).
Ég leyfði mér svo að leggja mig aðeins seinnipart laugardags svona bjútí sleep svo ég yrði rosa sæt um kvöldið. Þegar við vorum að klæða okkur í árshátíðardressin þá uppgötvaði Nökkvi að hann hafði nú gleymt fleiru en bol. Hann hafði alveg gleymt að taka með sér skyrtu, en hann var með tvö bindi með sér til að vera viss. Nýi bolurinn kom sér vel, því hann vildi alls ekki vera ber að ofan með tvö bindi þrátt fyrir mikla hvatningu frá mér
Árshátíðin var svo alveg frábær, æðislegur matur og frábær veislustjóri (Björk Jakobs). Forstjórinn kom líka á óvart og lék á alls oddi, sagði brandara hægri, vinstri. Skemmtilegir leikir sem allir voru til í að taka þátt í. Happadrætti þar sem veglegir vinningar voru í boði m.a utanlandsferð fyrir tvo (við unnum ekkert, ekki okkar stíll). Hljómsveitin var ágæt, það var alla vega dansað nóg. Og ekki má gleyma því hvað var hlegið mikið. Skemmtum okkur fram undir kl fjögur að morgni og lögðum svo af stað heim í kringum hádegi á sunnudag.
Toppurinn á helginni var samt að eyða smá tíma með karlinum mínum án bús og barna. Yndislegt, og lífsnauðsynlegt öðru hvoru.

Fór í fyrsta próf á mánudagsmorgun, tölfræði og gekk svona glimrandi vel. Enda búin að drekkja vitlausu sellunum í búsi
Nú er bara lestur, lestur, lestur. Próf á föstudag, svo 5.. 7 og 9.maí.
Fáfni var hent öfugum út af leikskólanum í dag því hann er með útbrot út um allt andlit. Líklega vírusútbrot, vilja hann ekki fyrr en hann er laus við þau. Alveg á besta tíma.....
Mamma og pabbi ætla nú að bjarga mér og hafa hann eitthvað, þessar elskur. Veit ekki hvað ég gerði ef þeirra nyti ekki við.

Vonandi er þetta nógu langt blogg fyrir Röggu mína og alla hina sem droppa hér inn. Þið eruð yndisleg öll saman og ekki láta neinn segja ykkur eitthvað annað.

Skrifað 29.4.2008 kl. 23:20 af Íris

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

29.4.2008

Afmæli

Heimsins besti pabbi á afmæli í dag. Hann er á óræðum aldri, sennilega bara besta aldri. Mér tókst að alla vega að ruglast all svakalega þegar Darri spurði hvað hann yrði gamall og sagði hann verða 45 ára  Darri greyið horfði á mig með spurnaraugum og sagði svo "mamma, hvað er pabbi eiginlega gamall?" Held honum hafi fundist eitthvað ótrúlegt að þeir væru nánast jafn gamlir

Elsku pabbi til hamingju með daginn. Þú yngist greinilega með hverju árinu.
Knús frá Hlíðtíningum

Skrifað 29.4.2008 kl. 11:22 af Íris

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

25.4.2008

Bollukinnar

Fyrir 23 árum á sumardaginn fyrsta (25.04.1985) fæddist lítil stúlka. Hún var alveg ótrúlega sæt með dökkt hár, rosalegar bollukinnar og pínulitla, ótrúlega fyndna höku sem stóð eins og lítil varta út í loftið. Þetta stúlkubarn stækkaði náttúrulega og varð óttalegur grallari, alltaf brosandi út að eyrum. Hún er ennþá algjört krútt en kinnarnar eru ekki algjörar bollur og hakan hefur nú breyst.

Elsku Hafrún innilega til hamingju með daginn

Knús og kossar frá okkur Hlíðtíningum 

Skrifað 25.4.2008 kl. 12:13 af Íris

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

24.4.2008

Skórnir sem stækkuðu!

Þær eru ýmsar hremmingarnar sem mannfólkið lendir í! Hann Fáfnir Freyr lenti illilega í því í dag! Skórnir hans STÆKKUÐU!

Ég tók eftir því þegar við vorum á kaffihlaðborðinu í Slysó að skórnir hans voru einkennilega stórir, mig mynnti nú að þeir hefðu verið nokkuð passlegir. Fáfnir Freyr varð hinn móðgaðasti þegar ég nefndi þetta við hann og sagði "þeir eru ekkert stórir, þeir bara stækkuðu" okkur foreldrunum fannst það nú frekar fyndið og spurðum hvenær þeir hefðu gert það."Nú, á meðan ég var í hoppukastalanum!"    

Hann fór sem sagt í skó sem voru þremur númerum stærri en hans þegar hann var búin að hoppa og fannst það bara ekkert mál, búinn að labba hálfan bæinn á þessum skíðum, GÓÐUR!

Skrifað 24.4.2008 kl. 20:42 af Íris

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

24.4.2008

Nú er sumar, gleðjumst gumar

Gleðilegt sumar allir saman. Það er sem sagt komið blessað! Og planið hér á þessum bæ er að eiga frábært sumar. Planið er líka að hafa mikið af sól og yndislegheitum. Kröfuhörð? Það finnst mér ekki.

Plan fyrsta sumardags er sirka svona. Læra fyrir tölfræði og lífeðlisfræði. Fara á hnallþóruhlaðborð Slysó, mín elskulega móðir býður mér og mínu liði alltaf þangað á Sumardaginn fyrsta. Ég er komin með vatn í munninn við tilhugsunina. Ætli ég læri svo ekki aðeins meira. Geri svo börnin mín klár í pössun, og okkur hjónin í árshátíðarferðalag.

Á föstudag erum við sem sagt að fara á árshátíð Ísfells. Í ár verður gamanið á Hótel Heklu, sem er einhversstaðar hérna megin við Selfoss. Mamma og pabbi ætla að passa grislingana fyrir okkur. Ég ætla að vera dugleg að læra á laugardaginn meðan liðið fer í óvissuferð eða leiki. Svo er planið að skemmta sér vel og dansa um kvöldið. Ég ætla að drekkja öllum vitlausu heilasellunum mínum í rauðvíni og einhverju góðu svo það verði nóg pláss fyrir þær gáfuðu til að athafna sig. Mæta svo ferlega fersk í tölfræðipróf á mánudag.

Eigið góðan dag, gullin mín! Mæli ekki með stuttbuxum sem átfitti í dag. Svo Ragga ekki pakka vetarfötunum niður alveg strax elskan!

Skrifað 24.4.2008 kl. 9:34 af Íris

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

22.4.2008

Söngfuglinn

Skoða nánar

19.4.2008

Læri, læri, tækifæri!

Skoða nánar

17.4.2008

Vor í lofti

Skoða nánar

16.4.2008

Myndir

Skoða nánar

16.4.2008

Allt í klessu

Skoða nánar

15.4.2008

Forvitni

Skoða nánar

14.4.2008

Helv. snjór

Skoða nánar

10.4.2008

Hún er sko konan!

Skoða nánar

10.4.2008

Fólk er yndislegt

Skoða nánar

9.4.2008

þreytustreita

Skoða nánar

5.4.2008

Halló heimur

Skoða nánar

1.4.2008

Bilerí

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Vafraðu um


Tenglar

Flettingar í dag: 24
Gestir í dag: 11
Flettingar í gær: 16
Gestir í gær: 9
Samtals flettingar: 62348
Samtals gestir: 19532
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 21:03:10