|
Íris, Nökkvi og co |
|
Blogg27.2.2008StoltEr búin að vera lítið heima við það sem af er þessari viku. Var í skólanum frá kl 8 til að verða 18 í gær. Mætti þar kl 10 í morgun, kíkti aðeins heim til mín sennilega um kl 18 í dag en þá var ég búin að eyða smá tíma í búðinni að finna afmælisgjöf , fór aftur í skólan kl 19:30 og kom heim 22:30. Erum að vinna verkefni sem við eigum að flytja fyrir norðan í næstu viku. Sem sagt brjálað að gera. Fáfnir Freyr gerði mig svo stolta þegar ég kíkti heim til mín í dag. Hann las fyrir mig og taldi svo upp að 100. Rosalega duglegur litli snúðurinn minn. Litla barnið mitt kann að lesa og telja upp í 100, ja hérna hér! Darri Snær ákvað að sleppa skíðaferðinni. Hann ákvað að það væri skárra að hanga heima og mæta bara í skólan, hann hefði lítið fyrir stafni í skíðaferð svona hér um bil einfættur. Ég varð voðalega fegin, því ég er eiginlega dauðhrædd um að hann stórslasi sig á þessum hækjum hann er eitthvað svo klaufskur á þeim . Annars er fóturinn allur að koma til og piltur notar orðið að mestu bara eina hækju minnir á House!Á laugardaginn erum við hjúkkusysturnar að fara norður í fjarnemaviku, sýnist stundataflan alveg pökkuð svo manni ætti ekki að leiðast mikið. Ég er reyndar lítið spennt fyrir ferðalaginu í þessari vetrarfærð, en hef átta axlir til að snökkta á ef ég verð mjög hrædd. Ekki er það nú slæmt! Unnar Tjörvi Þessi sætilíus verður tveggja ára á morgun. Dísus hvað tíminn líður hratt á gervihnattaöld. Elsku Unnar Tjörvi ég knúsa þig í huganum í tilefni dagsins. Þar til næst knús á línuna!! 24.2.2008Og það er fjör!Skrölti með mínum ekta manni á árshátíð Jöklanna, og skemmti mér bara vel. Dansaði nú ekki frá mér allt vit eins og oft áður, en það kom til af því að ég tók ekki með mér strigaskóna! Þóttist geta verið gella heilt kvöld og uppskar ansi þreytta fætur. Stundum hef ég nú brugðið á það ráð að fara bara úr skónum og dansa á sokkaleistunum og gefst það oftast vel en núna lagði ég ekki í það vegna mikils mannfjölda á dansgólfinu. Sumir dönsuðu meira að segja upp á borðum svo mikið var stuðið. Okkur var boðið í fyrirpartý hjá þeim eðal hjónum Bróa og Gullu. Þar var glatt á hjalla og að sjálfsögðu tekið lagið. Mér leist nú samt eiginlega varla á hvað meðalaldurinn í 2.bassa er hár. Og þegar sessunautur minn á Hótelinu var farin að segja mér hvað skemmtanalífið í suðusveit hefði verið dauft eftir að langalangafi, langamma og langafi fluttu úr sveitinni, var mér nú alveg hætt að lítast á blikuna . En þetta er allt hið skemmtilegasta fólk og var mikið hlegið og skrafað. Sem sagt bara fjör!Þegar við hjónakornin komum heim þurfti að sjálfsögðu að byrja á því að koma Nesjamanninum út!! Skutluðum honum nú ekkert út í snjóinn, leifðum honum nú að hringja og láta sækja sig. Smá saga af Fáfni í lokin. Nökkvi var að strauja skyrtuna sína í gær þegar Fáfnir Freyr kom askvaðandi, rak upp stór augu og sagði með hneykslunarsvip "hvað ertu að gera?" Nökkvi svaraði því til að hann væri að strauja skyrtuna sína svo hann gæti verið fínn á ballinu. Sá stutti svaraði með þjósti "en mamma má bara strauja!" Ég vil taka það fram að ég strauja eins sjaldan og ég mögulega get svo ég er nú ekki alltaf með straujárnið í hendinni en kannski oftar en húsbóndinn. Ætli pilturinn kræki sér í dökka konu (svo hann eiginist barn sem er brúnt í framan) , sem verður mjög viljug við heimilisstörfin og mun ekki fara fram á að hann vinni einhver "kerlingarverk!" 23.2.2008Mamma ég vil fá!Eitthvað sem ég heyri oft og jafn vel oft á dag, eins og flestar mömmur reikna ég með. Í gærkvöldi var beiðnin reyndar frekar óvenjuleg. Þegar Fáfnir Freyr sem var að horfa á sjónvarpið sagði allt í einu "mamma, ég vil fá svona lítið barn, svona brúnt í framan!" Mér varð svo mikið um að mér svelgdist á eigin munnvatni og hváði. Fáfnir Freyr svaraði óðum "þau eru svo falleg! Kannski verður barnið svona brúnt í framan í maganum á þér" Ég varð nú ekkert voðalega spennt yfir þessu enda finnst mér ég eiga nógu mörg börn og hef ekki þörf fyrir að eignast fleiri. Svo ég sagði við hann að kannski mundi hann bara eignast barn sem væri brúnt í framan þegar hann yrði stór....................... Hann leit á mig stórum spyrjandi augum og sagði "en mamma ég get ekki eignast barn, mömmur geta bara haft barn í maganum, þú verður að hafa það í maganum við skulum eiga það saman!" hmmmmm Ég vona nú bara að hann gleymi þessu sem fyrst. Er bara búinn að spurja 1x í dag hvenær ég ætli að fá mér barn í magan!!! Ég lofa ykkur því að það verður ekki. Ég á þrjú yndisleg börn sem stundum krefjast mikils. Ég ætla ekkert að bæta fleirum við þó mér finnist börn frábær. 22.2.2008Hæ hóErum alveg með lífsmarki hér á þessu heimili. Það er bara alltaf nóg að gera, eins og á öðrum heimilum reikna ég með. Takk fyrir allar athugasemdirnar elskurnar, rosalega gaman að fá svona margar. Það gengur ekki vel að semja um fleiri tíma í sólarhringinn. Það er nú eiginlega bara skellt á mig þegar ég reyni að ná í þann í efra. Kannski hef ég ekki verið nógu dugleg að fara með bænirnar mínar. Það er erill fram undan hjá fjölskyldunni, ekki að það sé mikið um rólegheit. Nökkvi fór á Reyðarfjörð í dag, reikna með honum í kvöldmat samt. Darri Snær fer líklega í skíðaferð á þriðjudag! Reikna samt með að hann verði meira í kakógerð en á skíðum (ég vona það alla vega). Nökkvi flýgur suður á mánudag, eða var það miðvikudag, heim sama dag. Ég fer svo á Akureyri næsta laugardag í vikudvöl. Yrsa Líf fer svo á Laugar í Sælingsdal (held hann heiti það þessi dalur) um það leiti sem ég kem heim og verður þar í 5 daga. Svo ætlum við öll saman til tilbreytingar um miðjan mars í fermingu hjá honum Gísla Tjörva í Reykjavíkinni. Það verður nú aldeilis að fá auka tíma í sólarhringinn til að pakka niður og taka upp úr töskum á næstunni. Verð sennilega að fara að rifja upp bænirnar! Það fær svo engin á heimilinu að ferðast neitt meir fyrr en í sumar og hana nú!! Darri Snær er að fara í utanlandsferð í sumar og tekur pabba sinn kannski með. Lúðrasveit tónskólans er að fara til Svíþjóðar að spila á Göteborgs music festival. Þau verða í viku. Það er sko heil mikil spenna fyrir því. Svo hef ég nú gaman af að segja ykkur frá því að mér tókst að reikna heimadæmin án þessa að fá hjartslátt, andnauð og pirring dauðans....HÚRRA fyrir mér! Árshátíð karlakórsins er á morgun, ekki viss hvort ég fer en sendi pottþétt karlinn! Reikna samt fastlega með að ég skrölti með honum. Eigið góða helgi. Og strákar munið að vera góðir við konurnar í lífi ykkar! Ég veit þið eruð það alltaf en verið bara ennþá betri en vanalega.... 18.2.2008Fleiri klukkutíma....Ætla í kjarabaráttu og heimta fleiri klukkutíma í sólarhringinn! Finnst það fín kjarabarátta fyrir háskólanema. Hef það einhvern vegin á tilfinningunni að ég sé ekki sú eina sem vantar nokkra tíma í sólarhringinn. Nema ég svo svona skelfilega skipulagslaus!!!!!
Skrítin tilfinning þegar "litlu börnin" manns fara að eignast kærasta/kærustu. Ekki það að það hafa nú alveg verið svona smá skot og verið á "föstu" í smá tíma. En núna nýlega er barnið mitt komið á mjög svo fast! Það er verið saman dag og nei,, nei set mörkin við nótt!! Hún borðar hjá honum og hann hér. Er t.d búin að gefa honum að borða þrjú kvöld í röð! En það kemur nú kannski til af því að drengurinn býr í nesjunum svo það er bara hentugra að gefa að borða en að standa í eilífu skutli fram og til baka.........................Skrítið þegar vinirnir verða allt í einu að kærustum. Maður fer að gera sér grein fyrir að líklega er barnið nær því að vera fullorðið en því að vera barn. Þýðir það þá að ég sé að verða gömul!!!! |
Vafraðu umEldra efni Tenglar
Flettingar í dag: 3 Gestir í dag: 2 Flettingar í gær: 29 Gestir í gær: 15 Samtals flettingar: 62356 Samtals gestir: 19538 Tölur uppfærðar: 21.3.2010 02:27:31 |