|
Íris, Nökkvi og co |
|
Blogg7.2.2010farinJæja þá er ég farin að heiman aftur. Verð nú í þrjár vikur. Á jafnvel von á því að karlpeningur heimilisins heimsæki mig eftir tvær vikur. Iss tíminn mun fara hratt yfir það er ég viss um. Verð að þessu sinni á A7 í Fossvogi, sem er smitsjúkdómadeild, það hefði komið sér vel að vera búin að fara í lifrarbólgu B bólusetninguna sem ég gleymi alltaf að starta. En ég verð extra varkár. Knús á línuna 30.1.2010í heimsókn heimaÁ viku frí og brunaði heim í fjörðinn minn fagra í tilefni þess. Gott að koma heim og knúsa strákana og svo svaf ég eins og engill í mínu rúmi við hliðina á besta manni í heimi, lífið gæti ekki verið betra, nema þá dóttirin hefði líka verið heima. Ég ætla að nota vikuna í eitthvað notalegt bara, njóta þess að vera bara mamma og eiginkona. Kannski læri ég eitthvað smá svona meðan strákarnir eru í skólanum og bóndinn í vinnunni. Verð alveg endurnærð til að takast á við þriggja vikna fjarveru. En mikið er þetta veðurfar skrítið. Ég keyrði suður í þvílíku blíðskapar veðri fyrir tveimur vikum. Þetta var bara eins og að vori, og ég get svo svarið það að túnin voru græn á að líta. Þegar ég keyrði heim núna þá var sama blíðan svona hér um bil, það var reyndar frost en færðin var bara dásamleg. Einu hálkublettirnir á leiðinni voru við Þveitina! Farið vel með ykkur 22.1.2010Yndisleg ungabörn, nýbakaðar og verðandi mæðurNú er ég búin að vera rúma viku í höfuðborginni. Þessa viku er ég búin að vera í verknámi á sængurkvenna- og meðgöngudeild LSH. Þetta er búið að vera skemmtilegur tími, hvað er yndislegra en að vera með splunkuný börn fyrir augunum allan daginn? Fátt held ég. Og mér finnst líka ófrískar konur svo óendanlega fallegar svo augu mín hafa heldur betur fengið að njóta fegurðar þessa vikuna. Ég kom sjálfri mér á óvart og er búin að vera að aðstoða konur við brjóstagjöf sem nota bene gekk frekar illa upp hjá mér, en ég hef greinilega lært eitthvað í þessi þrjú skipti sem ég rembdist eins og rjúpa við staur með þau mál og að sjálfsögðu bætt við þekkinguna í kúrsinum. Gaman að sjá þegar þetta virðist ætla að ganga upp og mæðurnar eru sælar og glaðar og börnin sátt, en flestar þessara kvenna hafa gengið í gegnum keisaraskurð eða erfiða fæðingu svo þær hafa jú um margt að hugsa og eru misbrattar, svo það er dásamlegt þegar þessi mál ganga. Ég fylgdist með keisaraskurði og fylgdi svo þeirri konu og barni eftir. Ég var ekki viss um að svona aðgerðardæmi væri fyrir mig en vá, ég kom sjálfri mér algjörlega á óvart og fannst þetta svo áhugavert að ég mátti nú bara passa mig að verða ekki fyrir hnífnum og saumagræjunum. Þetta var alveg stórkostleg upplifun og merkilegt að fá að fylgjast með þessu. Svo þurfti ég að sprauta barnið með K vítamíni sem öll börn eru sprautuð með og mér fannst það erfiðara en að horfa á aðgerðina Ég er líka búin að njóta samvista við æskuvinkonuna, mágkonuna á skaganum ásamt sonum, knúsa stelpuna mína og hitta bróður minn, mágkonu og krúttin þeirra. Er einmitt að fara þangað í mat, sem mér finnst ekki leiðinlegt. Þarf að skella mér í búð áður og kaupa eftirmat því ég er búin að venja Sunnu og Unnar á að frænkan komi með eitthvað gotterí í eftirmat, en bara á föstudögum eða um helgar Strákarnir mínir hafa það gott heima, eins og við var að búast. Stubburinn minn er frekar lélegur að spjalla við mömmu sína í síma, hann er ekkert fyrir svona símaspjall. Heyrði í honum um daginn þegar Ísland var að spila fyrsta handboltaleikinn og eftir smá stund sagði gæinn, mamma ég bara get eiginlega ekki talað við þig lengur því þá heyri ég ekkert hvað er að gerast í handboltanum Hafið það gott og ekki sprengja ykkur á pungum 15.1.2010Mætt í borginaKomin í borgina. Ferðin gekk ljómandi vel og ég er alsæl með tíðarfarið :) ég hefði aldrei þorað að keyra þetta í hálku og snjó. En það er yndislegt að hafa bílinn með í borginni þá er svo mikið einfaldara að fara í heimsóknir og gera eitt og annað til að láta tíman líða. Byrja á sænkurkvennadeild á mánudag og verð þar í 5 daga. Hlakka til. 13.1.2010það er að koma að þvíJæja ég er að fara að heiman ekki á morgun heldur hinn. Ég er ekki tilbúin (andlega) en kannski er maður aldrei tilbúin. Ég hlakka samt til, smá blanda af tilhlökkun og kvíða. En þetta verður fljótt að líða. Sýnist að ég verði á kafi í verkefnavinnu samhliða verknáminu og já svo er líka eitt lítið próf á mánudag. Fæ að hitta stelpuskottið mitt það er plúsinn og sætu systkinabörnin okkar Nökkva. Þetta verður spennandi. |
Vafraðu umEldra efni Tenglar
Flettingar í dag: 34 Gestir í dag: 13 Flettingar í gær: 42 Gestir í gær: 16 Samtals flettingar: 60603 Samtals gestir: 19033 Tölur uppfærðar: 9.2.2010 18:31:38 |